Íslensk flugfélög á flugsýningunni í París 19. júní 2007 10:29 Sýningin er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. MYND/AFP
Íslenskir flugrekendur eiga fulltrúa sína á flugsýningunni í París sem hófst í gær og stendur út vikuna. Þar er um að ræða fulltrúa frá Icelandair Group, Avion Aircraft Trading og Air Atlanta Icelandic og eru þeir í hópi um 200 þúsund annarra fulltrúa kaupenda og seljenda flugvéla sem leiða saman hesta sína. „Um tvö þúsund sýnendur kynna hér flugvélar, stórar sem smáar, vélar fyrir venjulegt farþegaflug, hervélar og vélar sem sinna ýmsum sérverkefnum, hvers konar flugtækni. flugvélahluta og flugleiðsögukerfi má skoða hér á fjölmörgum básum," segir í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu. „Yfir höfðum manna svífa svo með mismiklum gauragangi vélar sem sýna getu sína og flugmanna sinna. Er raunar haft á orði að hér þýði lítið að tala saman uppúr hádegi því þá nái flugsýningarnar yfirhöndinni og eru það orð að sönnu því þær eru ekki allar hljóðlátar." Í tilkynningunni er greint frá því að umræða um hávaða frá flugvélum, mengun og losun gróðurhúsalofttegunda verði æ fyrirferðarmeiri í flugheiminum og hafa sumir flugvélaframleiðendur lagt sérstaka áherslu á að kynna framfarir sínar í þessum efnum á sýningunni. „Á sýningunni kynna jafnan stærstu framleiðendurnir nýja sölusamninga og þannig hefur Boeing greint frá sölu 40 B737-900 véla til Lion Air sem er með höfuðstöðvar í Jakarta og Airbus heldur blaðamannafund í dag þar sem búast má við að greint verði frá stöðunni á sölu Airbus A380 risaþotunnar sem hér hefur mátt sjá bæði á jörðu niðri og á lofti." Þegar hefur verið tilkynnt um miklar pantanir í A350 breiðþotuna sem keppir við B787 Dreamliner en ljóst verður eftir sýninguna hvernig essir tveir framleiðendur standa í keppninni um hylli kaupenda að því er tíðindamaður samgönguráðuneytisins segir.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Sjá meira