Wenger: Englendingar fljótfærir 23. nóvember 2007 12:58 Wenger lýsir yfir stuðningi sínum við McClaren NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger útilokar þann möguleika að taka við enska landsliðinu og gagnrýnir hvernig staðið var að uppsögn Steve McClaren í gær. Honum þykir knattspyrnusambandið hafa brugðist harkalega við en kemur leikmönnum enska landsliðsins einnig til varnar. "Mér finnst McClaren ekki hafa sýnt fram á að vera vanhæfur í starfið, en í þessu umhverfi er þolinmæðin ekki mikil. Mér finnst súrt að sjá að honum hafi verið sagt upp strax morguninn eftir leikinn og mér finnst að menn hefðu átt að gefa sér tvær vikur til að fara yfir stöðuna." "Knattspyrnusambandið þarf að skoða mjög vandlega hvað fór úrskeiðis og reyna að finna lausnir á því. Það þýðir ekkert að rjúka til og ráða nýjan þjálfara og ætlast til þess að þá verð allt í lagi og liðið verði heimsmeistari árið 2010," sagði Wenger í samtali við Sun. Hann ver líka leikmenn enska liðsins. "Mér finnst að menn ættu ekki að taka leikmennina af lífi, því það eru góðir leikmenn í enska liðinu. Wenger útilokar að taka við enska landsliðinu, einfaldlega út af þjóðerni sínu. "Ef ég væri enskur, hefði ég sannarlega áhuga á starfi landsliðsþjálfara, en ég er það ekki - svo það þýðir ekkert að ræða það. Ég hef alltaf sagt að enski landsliðsþjálfarinn ætti að vera enskur," sagði Wenger og lýsti yfir stuðningi sínum við McClaren. "McClaren er að mínu mati hæfur þjálfari, en það var eins og Englendingar tækju honum aldrei nógu vel. Hann hafði það sem til þurfti til að ná árangri en það var alltaf eins og þjóðin væri á bremsunni gagnvart honum. Hann hefði þurft meiri stuðning til að sýna fram á að hann væri rétti maðurinn í starfið," sagði Wenger.
Enski boltinn Mest lesið Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Sjá meira