Enski boltinn

Einn af okkar bestu leikjum

NordicPhotos/GettyImages

Avram Grant knattspyrnustjóri sagðist hafa verið ánægður með sína menn í dag þegar lið hans Chelsea gerði 1-1 jafntefli við Everton á heimavelli.

"Þetta var einn besti leikur okkar til þessa. Við spiluðum fínan fótbolta, sköpuðum okkur fullt af færum, en þeir skoruðu úr eina færinu sem þeir fengu í leiknum. Fólk er hrifið af því hvað við spilum mikla sóknarknattspyrnu en í dag sáum við af hverju ég er ekki jafn hrifinn af því - við fengum á okkur mark upp úr engu. Það er ekki gott að eiga leiki frá upphafi til enda en vinna ekki, en ég held að við verðum í góðum málum í framhaldinu ef við spilum eitthvað í líkingu við þetta," sagði Grant.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×