Sven-Göran ver Garrido fram í rauðan dauðann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. október 2007 13:45 Javier Garrido reynir að halda aftur af Joe Cole í leik Chelsea og Manchester City á laugardaginn. Nordic Photos / Getty Images
Sven-Göran Eriksson segir að hann muni verja varnarmanninn Javier Garrido fram í rauðan dauðann. Garrido fékk vænan skammt af gagnrýni eftir leik Manchester City og Chelsea um helgina sem síðarnefnda liðið vann, 6-0. Svo gæti farið að Michael Ball taki stöðu hans í vörn City þegar liðið mætir Bolton í enska deildabikarnum í kvöld. Garrido verður þó örugglega með City gegn Sunderland í deildarleik á mánudaginn næstkomandi. Hann hefur átt gott tímabil, eins og aðrir leikmenn City, fyrir utan skellinn gegn Chelsea. Eriksson sakaði sína menn um að hafa einfaldlega gefist upp gegn Chelsea. En hann er sannfærður um að frammistaðan sé ekki einkennandi fyrir Garrido. „Hann er frábær leikmaður og mikill baráttuhundur. Hann átti erfitt uppdráttar á laugardag, sérstaklega í síðari hálfleik. Hann var þó ekki sá eini. Tíu leikmenn til viðbótar áttu einkar slæman dag.“ Eriksson sagði enn fremur að menn verði að vinna saman á vellinum. „Ef menn hjálpast ekki verða varnarmennirnir berskjaldaðir. Að benda á einn leikmann í þessu sambandi er einfaldlega rangt.“
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sjá meira