Erlent

Putin ítrekar andstöðu sína við eldflaugavarnir í Póllandi og Tékklandi

Putin er nú í heimsókn í boði Bush.
Putin er nú í heimsókn í boði Bush.
Vladimir Putin, forseti Rússlands, ítrekaði andstöðu sína við fyrirætlanir Bandaríkjanna um eldflaugavarnir í Evrópu á fundi þeirra í dag. Putin leggur til að settar verði upp varnir í Azjerbaijan frekar en í Póllandi og Tékklandi. Bush sagði að hugmyndir Putins væru nýstárlegar en lagði áherslu á að Bandaríkin vildu hafa viðbúnað í Póllandi og Tékklandi.

Bush segir að þótt hann treysti Putin vel þýði það ekki að honum líki við allt sem hann hafi að segja. „Mig grunar að Putin líki heldur ekki allt sem ég segi. En við getum talað út og borið virðingu fyrir andstæðum sjónarmiðum," sagði Bush.

Togstreita hefur verið milli Putins og Bush um eldflaugavarnarmálið undanfarna mánuði og eru leiðtogarnir nú á fundum við sumarhús Bandaríkjaforseta til þess að endurbyggja traust sín á milli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×