Erlent

Siglt í kjölfar forfeðranna

„Haffolinn frá Glendalough“ kvaddur í Hróarskelduhöfn í gær.
„Haffolinn frá Glendalough“ kvaddur í Hróarskelduhöfn í gær. Ljósmynd/Víkingaskipasafnið í Hróarskeldu

Síðdegis í gær lagði „Haffolinn frá Glendalough", 30 metra langskip sem er nákvæm eftirgerð slíks skips frá 11. öld sem fannst í Hróarskeldufirði, af stað frá Hróarskeldu áleiðis til Dyflinnar. Um borð er 65 manna áhöfn af ýmsu þjóðerni.



„Víkingarnir eru að koma aftur. Verið viðbúnir," hrópaði danski skipstjórinn, Carsten Hvid, til mannfjöldans sem fylgdist með skipinu láta úr höfn. „Þið verðið mjög velkomnir í Dyflinni í þetta sinn," svaraði Dick Roche, umhverfisráðherra Írlands. Írska höfuðborgin var stofnuð af víkingum á 9. öld. Áætluð koma skipsins þangað er 14. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×