Fimm handtökur í hryðjuverkarannsókn 2. júlí 2007 02:45 Rannsóknarlögreglumenn á vettvangi í gær þar sem jeppa í ljósum logum var ekið á innganginn að flugstöð Glasgow-flugvallar í fyrradag. fréttablaðið/ap
Breska lögreglan gerði húsleit í byggingum í grennd við Glasgow í Skotlandi og á Mið-Englandi í gær og tóku fimmta manninn fastan í leitinni að þeim sem grunaðir eru um að hafa tengst bíl-árásinni á flugstöð Glasgow-flugvallar og bílsprengjutilræðin sem koma tókst í veg fyrir í Lundúnum. Einni af flugstöðvarbyggingum Heathrow-flugvallar var lokað í gærkvöld vegna grunsamlegs pakka sem þar fannst. Hryðjuverkaógnin sem Bretar standa frammi fyrir er „langvarandi og stöðug,“ sagði Gordon Brown forsætisráðherra í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar. Það er ljóst, sagði hann, að „við erum, almennt séð, að fást við fólk sem tengist al-Kaída.“ Á föstudag tókst lögreglu að hindra samræmd sprengjutilræði í miðborg Lundúna, þegar sjúkraflutningamenn urðu varir við reyk koma frá Mercedes Benz-bifreið sem lagt hafði verið fyrir utan fjölsóttan næturklúbb. Í ljós kom að bíllinn var hlaðinn sprengiefni. Fáeinum stundum síðar fannst annar Benz fylltur sams konar sprengiefni. Og á laugardag óku tveir menn Cherokee-jeppabifreið i ljósum logum á inngang flugstövarbyggingarinnar á Glasgow-flugvelli. Peter Clarke, yfirmaður hryðjuverkavarnadeildar bresku rannsóknarlögreglunnar Scotland Yard, sagði í gær að æ skýrari tengsl væru að koma í ljós milli árásarinnar í Glasgow og sprengjubílanna í Lundúnum. Lögreglan hefði nú þegar orðið margs vísari um þá sem hlut hefðu átt að máli. Hann sagði hins vegar að það gæti tekið margar vikur að safna sönnunargögnum úr öryggismyndavélum. Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkahættu var hækkað í efsta stig í Bretlandi í gær. Jacqui Smith innanríkisráðherra sagði eftir fund með æðstu mönnum öryggismála í landinu að þjóðin myndi ekki láta hryðjuverkamenn beygja sig. Hún hvatti almenning til að vera á varðbergi. Mennirnir tveir úr árásinni í Glasgow voru í haldi lögreglu, annar þeirra með alvarleg brunasár á sjúkrahúsi. Götu við sjúkrahúsið var lokað í gær á meðan lögregla sprengdi grunsamlega bifreið. Engin sprengiefni fundust þó.
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Innlent Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Sjá meira