Erlent

Rifflakosturinn endurnýjaður

Heckler & Koch HK-416-hríðskotariffill þýsku vopnasmiðjunnar.
Heckler & Koch HK-416-hríðskotariffill þýsku vopnasmiðjunnar. MYND/H&K

Norski herinn hefur ákveðið að endurnýja allan hríðskotarifflakost sinn. Gerður hefur verið samningur um að þýska vopnasmiðjan Heckler & Koch sjái hernum fyrir 8.200 nýjum hríðskotarifflum af gerðinni HK 416, að því er greint er frá á fréttavef Aftenposten.

Nýju rifflarnir koma í stað AG-3-riffilsins, sem hætt var að framleiða fyrir rúmum þrjátíu árum.

Sá nýi, sem Norðmenn verða fyrstir til að taka í notkun, er léttari og meðfærilegri en sá gamli og sagður henta betur í fjölþjóðaverkefnum eins og í Afganistan. Hann verður einnig búinn nætur­sjónauka og -miðunar­búnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×