Erlent

Segjast hafa myrt Johnston

Áður óþekkt samtök Palestínumanna, Fylking einingar guðs og heilags stríðs, halda því fram að þau hafi tekið breska blaðamanninn Alan Johnston af lífi.

Johnston, sem starfar fyrir Breska ríkissjónvarpið, BBC, var rænt fyrir mánuði síðan af vopnuðum hópi manna á Gaza-svæðinu. Í yfirlýsingu frá BBC segir að stofnunin kannist við fullyrðingu samtakanna, en hafi engar sönnur fyrir því að rétt sé farið með.

Palestínski innanríkisráðherrann, Hani Kawasmeh, tekur í sama streng og segist ekki geta staðfest að samtökin hafi myrt Johnston.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×