Nikolic kjörinn þingforseti 9. maí 2007 03:45 Tomislav Nikolic Einn leiðtoga Róttæka flokks Serbíu. MYND/AP
Bandamaður Slobodans Milosevic heitins var í gær kjörinn forseti serbneska þingsins, en kjörið markar endurkomu öfgaþjóðernissinna til valda og áhrifa í landinu. Tomislav Nikolic, einn af leiðtogum hins öfgaþjóðernissinnaða Róttæka flokks Serbíu, var kjörinn í þetta áhrifamikla embætti með fulltingi þingmanna íhaldsflokks fráfarandi forsætisráðherra, Vojislavs Kostunica. Nikolic fékk atkvæði 142 af 244 þingmönnum sem viðstaddir voru á maraþonþingfundi sem stóð yfir í nærri fimmtán tíma og lauk ekki fyrr en aðfaranótt þriðjudags. Frambjóðandi Lýðræðisflokksins, sem er hliðhollur nánari tengslum við Vesturlönd, fékk 99 atkvæði. Með kjörinu varð Nikolic fyrsti öfgaþjóðernissinninn til að komast í hátt embætti síðan Milosevic var bolað frá völdum árið 2000 í byltingu sem mikill meirihluti almennings studdi. Valið á Nikolic endurspeglar vaxandi áhrif þjóðernissinna í stjórnmálum landsins þegar hillir undir að Kosovo-hérað verði lýst sjálfstætt samkvæmt áætlun Sameinuðu þjóðanna. Að vestræn-sinnaðir lýðræðisflokkar landsins skyldu ekki geta komið sér saman um stjórnarmyndun frá því þingkosningar fóru fram hinn 21. janúar ýtir einnig undir þessa þróun.
Mest lesið Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Fangavörður sendur í leyfi Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Erlent Þrjár stúlkur réðust á eina Innlent Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Innlent Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Erlent Fleiri fréttir Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Sjá meira