Erlent

Ramos-Horta sigurstranglegri

Starfsmenn kjörstjórnar bera kjörkassa á kjörstað í höfuðborginni Dili í gær.
Starfsmenn kjörstjórnar bera kjörkassa á kjörstað í höfuðborginni Dili í gær. MYND/AP

Íbúar Austur-Tímor ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér nýjan forseta í úrslitaumferð forsetakosninga. Í framboði eru Jose Ramos-Horta, handhafi friðarverðlauna Nóbels og Francisco „Lu-Olo“ Guterres en þeir hafa báðir heitið því að hlíta niðurstöðum kosninganna.

Austur-Tímor hlaut sjálfstæði árið 1999 eftir tuttugu og fjögurra ára harðstjórn Indónesíu. Sameinuðu þjóðirnar fóru með stjórn landsins til ársins 2002. Í fyrra brutust út átök þegar þáverandi forsætisráðherra landsins, Mari Alkatiri, rak þriðjung hersins eftir uppreisn hans. Um 155 þúsund manns flúðu heimili sín og 37 létu lífið í átökunum áður en stjórnin féll. Þá tók Ramos-Horta við embætti forsætisráðherra.

Friði var komið á eftir að Ástralir sendu 1200 manna friðargæslulið til landsins.

Flestir telja Ramos-Horta sigurstranglegri en fimm frambjóðendur úr fyrri kosningaumferðinni hafa hvatt stuðningsmenn sína til að kjósa hann. Fransisco Guterres er forsetaefni Fretelin-flokksins sem tengdist vopnaðri andstöðu gegn stjórn Indónesa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×