Erlent

Sektir fyrir hráka og rusl

Ósiðir á almannafæri eru yfirvöldum í Kína mikið áhyggjuefni nú í aðdraganda Ólympíuleikanna í Peking. Stjórnvöld hafa tekið upp á því að sekta borgarbúa fyrir að hrækja á almannafæri og voru fimmtíu manns sektaðir í síðustu viku.

Markmiðið með sektunum er að bæta ímynd landsins og siða landsmenn til. Fulltrúar borgarinnar heimsóttu helstu ferðamannastaði borgarinnar og deildu út meira en tíu þúsund ruslapokum. Einnig hafa leigubílstjórar og starfsmenn hótela og gististaða fengið kennslu í ensku og mannasiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×