Rætt um framseljanlegar veiðiheimildir 9. maí 2007 06:15 Tilgangurinn er að nálgast markmiðið um sjálfbærar fiskveiðar í lögsögu ESB. MYND/AFP
Evrópusambandið Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hleypt af stað umræðu með þátttöku hagsmunaaðila í sjávarútvegi í aðildarríkjunum um það hvernig mögulegt sé að betrumbæta fiskveiðistjórnun í sambandinu. Er þar sérstaklega litið til þess að rannsaka kosti og galla kerfa með framseljanlegum veiðiheimildum, með það í huga að slík kerfi verði tekin upp sem víðast. Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, sem var meðhöfundur að norsk-íslenskri skýrslu um endurskoðaða sjávarútvegsstefnu ESB sem út kom árið 2003, segir að „ef það er til alvarlegrar umræðu innan Evrópusambandsins að taka upp framseljanlega kvóta í sjávarútveginum þá er það eitthvað sem myndi gjörbreyta upphafsstöðu Íslands í aðildarviðræðum“. Val á fiskveiðistjórnunarkerfi er á valdi hvers aðildarríkis fyrir sig. En framkvæmdastjórnin vill víðtæka umræðu um það hvernig veiðiheimildum er úthlutað, hvort sem þar er um kvóta- eða sóknarstýringu að ræða, í því skyni að komast nær niðurstöðu um það hvaða kerfi skilar bestum árangri. Framkvæmdastjórnin leggur mat á hin ýmsu kerfi í skjali sem hún lagði fram í lok febrúar, með tilliti til þess hversu vel þau gagnast til að uppfylla markmið sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar. Skjalinu er ætlað að þjóna sem grundvöllur fyrir umræðuna. Hún á að standa yfir allt þetta ár og framkvæmdastjórnin hyggst taka málið aftur upp í byrjun næsta árs. „Ég vil tryggja að þessi skýrsla leiði til víðtækrar umræðu um það hvernig fiskveiðiréttindi hafa þróast innan sambandsins og það hlutverk sem þau geta gegnt við að koma á sjálfbærum fiskveiðum,“ sagði Joe Borg, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmdastjórninni. „Þessi umræða mun hjálpa til við að varpa ljósi á valkostina sem aðildarríkjunum standa til boða til að betrumbæta fiskveiðistjórnunarkerfi sín. Þannig er þetta mikilvægur þáttur í viðleitni okkar til að bæta fiskveiðistjórnun sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar,“ sagði Borg. Markmiðið er að með umræðunni um kerfi með framseljanlegum veiðiheimildum séu kannaðar leiðir til að auka á gegnsæi slíkra kerfa, auka lagalegt öryggi og ná fram hagræðingu, sem einnig felur í sér að lágmarka kostnað fyrir samfélagið í heild. Því á umræðan einnig að beinast að neikvæðum hliðum slíkra kerfa, svo sem að veiðiheimildir safnist á fárra hendur á kostnað smærri útgerðarstaða, og hvernig hægt er að mæta þeim.
Tengdar fréttir Jákvætt að bæta fiskveiðistjórnun Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir það vera mjög jákvætt ef ESB nær að bæta fiskveiðistjórnun með heildstæðum hætti 9. maí 2007 02:30 Mest lesið Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Fangavörður sendur í leyfi Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Erlent Þrjár stúlkur réðust á eina Innlent Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Innlent Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Erlent Fleiri fréttir Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Sjá meira
Jákvætt að bæta fiskveiðistjórnun Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir það vera mjög jákvætt ef ESB nær að bæta fiskveiðistjórnun með heildstæðum hætti 9. maí 2007 02:30