Fastir liðir í Norður-Lundúnum 15. september 2007 14:20 Adebayor fagnar fyrra marki sínu á White Hart Lane í dag NordicPhotos/GettyImages
Tottenham hefur ekki unnið sigur á grönnum sínum í Arsenal á öldinni og á því varð engin breyting í dag þegar Arsenal skellti sér á toppinn með 3-1 útisigri í leik liðanna á White Hart Lane. Veski landsliðsmaðurinn Gareth Bale hleypti vonarneista í heimamenn um að ná fyrsta sigrinum á Arsenal síðan 1999 þegar hann skoraði fallegt mark beint úr aukaspyrnu eftir 15 mínútna leik. Þannig stóðu leikar í hálfleik, en Arsenal-lðið vaknaði til lífsins í þeim síðari. Emmanuel Adebayor jafnaði metin fyrir gestina á 65. mínútu leiksins og hinn magnaði Cesc Fabregas kom Arsenal yfir 2-1 þegar hann stormaði upp miðjuna á 80. mínútu og þrumaði boltanum framhjá Paul Robinson í marki Tottenham. Í sókninni á undan bjargaði Gael Clichy á línu frá Dimitar Berbatov og vildu leikmenn Tottenham meina að sá bolti hefði farið inn fyrir marklínuna. Hafi markið hans Fabregas verið fallegt átti Adebayor eftir að toppa það skömmu síðar. Hann fór illa með nokkur góð færi í leiknum í dag en bætti fyrir það þegar hann skoraði sitt annað mark með viðstöðulausum þrumufleyg í blálokin - skömmu eftir að Arsenal hafði mistekist að skora úr dauðafæri. Tottenham átti fullt af góðum færum í leiknum en allt kom fyrir ekki og Arsenal heldur en föstu taki á grönnum sínum. Arsenal hefur ekki tapað fyrir Tottenham í 18 leikjum í röð og ekki útlit fyrir að breyting verði á því á næstunni.
Enski boltinn Mest lesið Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn