Spáð í spilin - Tottenham - Arsenal 15. september 2007 05:15 Darren Bent er í hópnum hjá Spurs á ný í dag NordicPhotos/GettyImages
Í dag há þessi lið 141. grannaslag sinn í deildinni og þann 31. síðan úrvalsdeildin var stofnuð. Tottenham leitast við að ná sínum 50. sigri gegn grönnum sínum í 156. leik liðanna. Arsenal hefur unnið þrjá af fjórum leikjum sínum í deildinni til þessa á meðan Tottenham hefur aðeins unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum. Arsenal hefur gert jafntefli í síðustu fjórum útileikjum sínum í úrvalsdeildinni og þar á meðal 2-2 jafntefli við granna sína í Tottenham á White Hart Lane síðasta vor. Tottenham hefur ekki unnið Arsenal á þessari öld og hefur spilað 18 leiki við Arsenal í öllum keppnum án þess að vinna sigur. Síðasti sigur Tottenham kom árið 1999 þegar fyrrum Arsenal stjórinn George Graham stýrði þeim hvítklæddu til 2-1 sigurs á heimavelli. Þá voru það Steffen Iversen og Tim Sherwood sem skoruðu mörk Tottenham, en þeir Martin Keown og Freddie Ljungberg voru báðir reknir af velli hjá Arsenal. Þetta var eini sigur Tottenham í síðustu 23 deildarleikjum gegn Arsenal. Stjórarnir David Pleat, Glenn Hoddle og Jacques Santini hjá Tottenham náðu aldrei að vinna Arsenal í tíð sinni með Tottenham og nú fær Martin Jol sitt níunda tækifæri til að ná þeim árangri í deild eða bikar. Til þess að vinna Arsenal má gera ráð fyrir því að Tottenham þurfi að ná að halda hreinu, en það hefur liðinu ekki tekist nema þrisvar í síðustu 33 deildarleikjum. Ekkert lið í úrvalsdeildinni hélt sjaldnar hreinu en Tottenham í fyrra. Tottenham hefur aðeins fengið fjögur stig úr fyrstu fimm leikjunum á leiktíðinni, en það er nákvæmlega sami árangur og í fyrra þegar liðið náði engu að síður fimmta sæti í deildinni. Arsenal hefur unnið þrjá leiki í röð í öllum keppnum og hefur ekki tapað í 11 deildarleikjum í röð - eða síðan liðið tapaði fyrir West Ham 1-0 þann 7. apríl í vor. Arsenal fékk - og skoraði úr - fleiri vítaspyrnum en nokkuð annað lið í úrvalsdeildinni í fyrra þar sem það nýtti 10 af 12 vítum sínum. Arsenal hefur ekki náð sigri í síðustu sex útileikjum sínum og sigur þess gegn Aston Villa þann 14. mars á síðustu leiktíð var eini sigur liðsins í síðustu átta útileikjum. Jermaine Jenas og Jermain Defoe hjá Tottenham munu báðir spila sinn 200. deildarleik á ferlinum ef þeir fá að spreyta sig í leiknum. Cesc Fabregas hjá Arsenal er markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar ásamt Nicolas Anelka hjá Bolton, en á meðan öll fjögur mörk Anelka hafa komið í deildinni hefur Fabregas skorað tvö sinna marka í Evrópukeppninni. Gilberto Silva gæti spilað sinn 150. leik ef hann spilar fyrir Arsenal.
Enski boltinn Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Handbolti „Góðu hliðarnar eru helvíti góðar“ Handbolti Bjarki Már reyndi að taka Óðin á taugum Handbolti Sviss - Ísland | Leikur sem verður að vinnast Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira