Enski boltinn

Fyrirgefðu Fergie

NordicPhotos/GettyImages

43 ára gamall Englendingur, Kevin Reynolds, hefur viðurkennt að hafa kýlt Sir Alex Ferguson í klofið og að hafa skallað lögregluþjón fyrir utan Euston-lestarstöðina í London á mánudagskvöldið. "Fyrirgefðu Fergie, ég vissi ekki að þetta værir þú," sagði sá drukkni fyrir rétti í Lundúnum í dag.

Reynolds á yfir höfði sér fangelsisvist fyrir líkamsárás og óspektir, en hann hélt því fram fyrir rétti í dag að hann hefði verið í skuggaboxi og hefði aldrei ætlað að slá til knattspyrnustjórans. "Ég er ekki viss um að Sir Alex Ferguson finnist þetta jafn fyndið," sagði lögmaður hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×