Erlent

Vill samvinnu lýðræðisafla

Forseti Serbíu skoraði í gær á lýðræðissinnaða stjórnmálaflokka landsins að leggja ágreiningsmál sín til hliðar og taka höndum saman um að mynda samsteypustjórn, eftir að flokkur herskárra þjóðernissinna varð stærsti flokkurinn á þingi samkvæmt niðurstöðum kosninga sem fram fóru í landinu á sunnudag.

Hið mikla kjörfylgi þjóðernissinna, sem fengu 28,3 prósent atkvæða, er ekki síst rakið til þess að spurningin um framtíð Kosovo-héraðs er nú mjög ofarlega á dagskrá. Strax í næstu viku er von á sérlegum erindreka Sameinuðu þjóðanna til Belgrad til að skila af sér tillögu að framtíðarfyrirkomulagi á þjóðréttarlegri stöðu Kosovo. Kosovo-Albanar, sem eru í yfirgnæfandi meirihluta íbúa í héraðinu, vilja fullt sjálfstæði en serbneskir þjóðernissinnar líta á héraðið sem óaðskiljanlegan hluta Serbíu.

Bozidar Djelic, sem talinn er líklegasta forsætisráðherraefni lýðræðisflokkanna, lagði á það áherslu í gær að birting SÞ-tillagnanna gæti spillt fyrir ríkisstjórnarmyndun, og ef þær gengu út á að Kosovo hlyti sjálfstæði myndu þær aðeins verða til að efla þjóðernissinna enn frekar. Fastlega er reiknað með að tillögurnar hljóði upp á skilyrt fullveldi Kosovo til handa.

Að hinni eldfimu Kosovodeilu frátalinni eru fleiri mál sem auðveldlega geta gert stjórnarmyndunarumleitanir erfiðar. Þar á meðal er hvernig taka skal á framsali á eftirlýstum meintum stríðsglæpamönnum, svo hvaða leiðir skuli reynt að fara til að rjúfa einangrun Serbíu og mjaka landinu nær því að fá að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið.

„Nýja ríkisstjórn verður að mynda hið snarasta," sagði Boris Tadic, forseti Serbíu, en Lýðræðisflokkur hans fékk flest atkvæði, 22,6 prósent, að frátöldum flokki þjóðernissinna sem heldur hugmyndafræði Slobodans Milosevic heitins í hávegum. Tadic sagði að hann myndi fela þeim stjórnarmyndunarumboðið sem bestar horfur hefði á því að ná árangri í að koma saman meirihlutastjórn lýðræðisaflanna.

Leiðtogi þjóðernissinna, Tomislav Nikolic, sagði í gær að Tadic ætti að fela stærsta flokknum á þingi stjórnarmyndunarumboðið. „En ég veit að hann mun ekki gera það," sagði Nikolic og spáði því að kosið yrði á ný áður en þetta ár væri úti þar sem „hinir svokölluðu lýðræðissinnar geta ekki komið sér saman um nokkurn hlut, hvað þá um nýja ríkisstjórn".



Fleiri fréttir

Sjá meira


×