Geri í buxurnar þegar andstæðingarnir fá hornspyrnu 6. september 2007 14:17 Martin Jol er staðráðinn í að snúa við gengi Tottenham NordicPhotos/GettyImages
Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur sent forráðamönnum félagsins þau skilaboð að hann muni ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Tottenham hefur gengið afleitlega í byrjun leiktíðar og sagt er að félagið hafi verið hársbreidd frá því að ráða Juande Ramos hjá Sevilla í starf hans á dögunum. Jol er hinsvegar ekki búinn að segja sitt síðasta og talaði til stuðningsmanna Tottenham á sérstökum viðburði í gærkvöldi. "Ég var mjög vonsvikinn þegar þessar fréttir láku út um daginn en ég er búinn að gleyma því. Nú er kominn tími til að horfa fram á við og ég á tvö ár eftir af samningi mínum sem ég ætla að standa við. Félagið losnar ekki svo auðveldlega við mig og ef ég verð ekki á hliðarlínunni í næstu leikjum - verð ég á áhorfendabekkjunum sem stuðningsmaður. Þannig maður er ég bara." Honum finnst hann enn njóta stuðnings áhangenda Tottenham og skorar á stjórnina að gleyma því ekki. "Ég var vanur að veifa til áhorfenda þegar þeir sungu nafn mitt á heimaleikjunum, en nú leyfi ég þeim að syngja aðeins lengur svo stjórnin heyri örugglega hvað stuðningsmönnum liðsins finnst," sagði Jol. Hann viðurkennir engu að síður að byrjun liðsins í deildinni sé langt undir væntingum. "Ég er við það að drulla á mig í hvert sinn sem eitthvað lið fær hornspyrnu á móti okkur en við erum að vinna í því að verjast föstum leikatriðum tvisvar í viku núna, svo að það fer vonandi að lagast. Við verðum að fara að laga leik okkar og mér líður ömurlega að vera aðeins kominn með einn sigur í fyrstu fimm leikjunum," sagði Jol í samtali við Daily Mail.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Tvær brauðsneiðar reyndust uppskriftin að fimm mörkum Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Sjá meira