Liverpool á leið í skuldafen? 28. október 2007 14:28 Gillett og Hicks keyptu Liverpool í vor NordicPhotos/GettyImages
Breska blaðið News of the World greinir frá því í dag að amerískir eigendur Liverpool gætu verið að sigla félaginu inn í skuldafen upp á hálfan milljarð punda. Blaðið segir að eigendurnir George Gillett og Tom Hicks, sem lýstu því staðfastlega yfir við kaupin á Liverpool að þeir ætluðu ekki að skuldsetja það líkt og Glazer feðgar hjá Manchester United, séu að undirbúa tæplega 700 milljón punda endurfjármögnun á skuldum félagsins þar bygging nýja heimavallarins vegi þyngst. Með þessu nýja láni yrð tæplega 300 milljóna skuld Liverpool við Royal Bank of Scotland hreinsuð upp, en hún var notuð til að kaupa félagið í mars. Þá færu hinar 400 milljónirnar í að mæta ört hækkandi kostnaði við byggingu nýja heimavallarins. Liverpool mun vera í viðræðum við ameríska Wachovia bankann og segir Hicks að væntanlega náist samningar í næsta mánuði. Liverpool vonast til að vinna sér inn um 100 milljónir punda fyrir nafnið á nýja vellinum, 20 milljónir í sérstakan styrk og 80 milljónir eftir öðrum fjármögnunarleiðum. Þá standa enn eftir einar 500 milljónir punda í skuld og óttast stuðningsmenn Liverpool að Bandaríkjamennirnir séu að setja félagið í fjárhagslega spennitreyju með þessum ráðstöfunum. Þetta myndi líklega þýða að Liverpool yrði að vera áskrifandi að þáttöku í Meistaradeildinni í hverju einasta ári til að fara ekki í þrot með að greiða af lánunum. Þegar Gillett tók við stjórnartaumun hjá Liverpool á sínum tíma, lofaði hann að kaupin væru ekki í neinu samræmi við kaup Glazer feðga á Manchester United þar sem þeir eru sagðir hafa komið félaginu í 660 milljón punda skuld. Þessi tíðindi virðast þó brjóta í bága við fyrri yfirlýsingar og stuðningsmenn félagsins hafa sumir hverjir miklar áhyggjur af áætlunum bandarísku eigendanna.
Enski boltinn Mest lesið Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Fótbolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Penninn á lofti í Keflavík Körfubolti Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Handbolti „Þvílík vika“ hjá Andreu Sport Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Fleiri fréttir Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Sjá meira