Klæmist á netinu fyrir leiki 3. desember 2007 10:40 Ashley Young fór mikinn á vefnum AFP
Enski landsliðsmaðurinn Ashley Young tók bókstaflega til hendinni áður en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Englendinga gegn Rússum í síðasta mánuði. Hinn 22 ára gamli Young skellti sér þannig á netið og átti frjálsleg samskipti við stúlku. Nóttina fyrir leikinn virðist sem Young hafi verið farið að leiðast þar sem hann fór á netið og setti sig í samband við stefnumótasíðu þar sem hann hitti Söru Taylor klukkan að ganga tvö um nóttina. Það er breska blaðið News of the World sem greinir frá þessu um helgina. Hann beið ekki boðanna og eftir að hafa sagt stúlkunni "hvað hann langaði að gera með henni" - reif hann sig úr fötunum og fór að gæla við sig í gegn um vefmyndavél. "Mér krossbrá. Ég ætlaði á netið til að daðra aðeins en þá fékk ég skilaboð frá manni sem sagðist vera í Moskvu í viðskiptaerindum. Hann var ósköp almennilegur í fyrstu, en svo reif hann sig úr og fór að veifa vininum framan í myndavélina. Ég átti ekki til orð yfir því að einhver gæti verið svona blygðunarlaus svona fljótt. Hann var með álitlegan pakka, en það var ótrúlegt að sjá hann byrja að veifa honum svona fljótt," sagði Taylor. Young, sem leikur með Aston Villa, kom inn sem varamaður hjá Englendingum daginn eftir þar sem liðið tapaði 2-1 og þurfti eftir það á kraftaverki að halda til að komast á EM. Young var þó ekki hættur að leika sér á netinu og hafði samband við Taylor aftur nokkrum dögum síðar þó hann eigi kærustu.Beraði sig í þriðja sinnYoung var mjög heitt í hamsi eins og sést á þessum myndumMynd/News of the World"Hann vildi ólmur að ég hringdi í sig og bað mig að senda sér dónaleg skilaboð til að staðfesta að ég hefði áhuga. Ég hringdi í hann til að heyra hvernig hann væri en hann vildi fljótt aftur fara aftur á netið til að klæmast. Hann hamaðist ákaft og kláraði sín mál og ég trúði ekki mínum eigin augum þegar hann fór af netinu klukkan hálftvö um nóttina," sagði Taylor.Hún segist hafa furðað sig á því að Young væri á hótelherbergi í viðskiptaerindum á föstudagskvöldi. Hana grunaði að hann væri knattspyrnumaður og komst að því hver hann var eftir smá rannsókn á netinu.Þar með var sögunni ekki lokið því News of the World prófaði að senda tálbeitu inn á netið á þessa sömu stefnumótasíðu og Young lét ekki á sér standa. Hann setti sig í samband við stúlkuna á tveimur mínútum og lét klúrum skilaboðum rigna yfir hana í tvær klukkustundir.Daginn eftir skoraði hann svo mark í 4-0 sigri Villa á Blackburn.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira