Erlent

Sonja Noregsdrottning varð sjötug í dag

Sonja, Noregsdrottning fagnaði sjötíu ára afmæli sínu í dag. Af því tilefni buðu hún og Haraldur Noregskonungur til veislu á veitingastaðnum Flóð og fjara sem er á eyjunni Sør-Hidle. Meðal tiginna gesta voru Margrét Danadrottning og Hinrik maður hennar, ásamt Friðriki krónprins. Einnig voru Karl Gústaf Svíakóngur, Sonja drottning hans og Viktoría dóttir þeirra viðstödd veisluna.

 

Sonja og Haraldur Noregskonungur giftu sig árið 1968 eftir níu ára samband.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×