Erlent

Danir krafnir skýringa

Fáni Færeyja
Fáni Færeyja

Fyrir utan hótel á Ródos, þar sem nú fara fram Eyjaleikarnir svonefndu, var færeyski fáninn dreginn að húni á sömu fánastöng og danski fáninn og hafður undir honum.

Að færeyski fáninn skyldi ekki fá að blakta jafnrétthár öðrum fánum Norðurlanda fór fyrir brjóstið á færeyskum mótsgestum og Högni Hoydal, leiðtogi stjórnarandstöðunnar á Lögþinginu, krafði utanríkisráðherrann Per Stig Möller skýringa.

En Árni Ólafsson, talsmaður Færeyjamála í danska utanríkisráðuneytinu, tjáði Politiken að málið væri stormur í vatnsglasi. Utanríkisþjónustan hefði ekki haft neitt með það að gera að flaggað skyldi hafa verið með þessum hætti fyrir utan umrætt hótel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×