Erlent

Floti F-14 orrustuþotna molaður í brotajárn

Floti F-14-þotna á herflugvelli í Tucson í Arizona, þar sem þær bíða eyðingar. F-14-þotur gerðu áður garðinn frægan m.a. með því að leika aðalhlutverk í Hollywood-myndinni Top Gun.
Floti F-14-þotna á herflugvelli í Tucson í Arizona, þar sem þær bíða eyðingar. F-14-þotur gerðu áður garðinn frægan m.a. með því að leika aðalhlutverk í Hollywood-myndinni Top Gun. MYND/AP

Þegar F-14 Tomcat-orrustuþotan var fyrst tekin í notkun snemma á áttunda áratugnum kostaði stykkið 38 milljónir dollara og var tákn um hernaðarlega yfirburði Bandaríkjanna í lofti.

Bandaríkjaher lagði síðustu slíku vélunum sem hann hafði í þjónustu sinni síðastliðið haust. Og nú er verið að mola þær í brotajárn til að hindra að varahlutir lendi í röngum höndum.

Eftir að það fregnaðist í byrjun þessa árs að varahlutir í F-14-þotur bærust frá Bandaríkjunum í hendur Írana og fleiri þjóða sem bandarísk yfirvöld hafa lagt bann við hergagnasölu til, brá bandaríska varnarmálaráðuneytið á það ráð að banna alla sölu á slíkum varahlutum.

Til að tryggja það bann enn betur er nú verið að klippa vélarnar sem eftir eru, í flugvélakirkjugarði Bandaríkjahers í Tucson í Arizona, niður í smábita.

Íranar keyptu áttatíu F-14-þotur á áttunda áratugnum, þegar landið var enn bandamaður Bandaríkjanna. Klerkastjórnin, sem tók við völdum í Teheran árið 1979, reynir enn að halda flota F-14-þotna í flughæfu ástandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×