Erlent

Íransstjórn sögð fjarstýra árásum

Íranar nota líbönsku Hezbollah-samtökin sem staðgengil til að hervæða sjíamúslima í Írak og íranskar sérsveitir aðstoðuðu við árásirnar í Karbala í janúar. Þetta fullyrðir bandarískur hershöfðingi.

Þetta eru hörðustu ásakanir sem hafa komið frá Bandaríkjamönnum um að Íransstjórn taki þátt í að kynda undir óöld í Írak. Þetta er einnig í fyrsta sinn sem haldið er fram að Hezbollah-samtökin taki beinan þátt í átökunum í Írak.

Hezbollah-liði var handtekinn í suðurhluta Íraks og er hann sagður hafa verið að vinna fyrir sérsveitir Írans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×