Erlent

Bush ánægður með ákvörðun

Aðalsakborningur „CIA-lekamálsins“ sleppur við fangelsi.
Aðalsakborningur „CIA-lekamálsins“ sleppur við fangelsi. MYND/AP

Talsmaður Hvíta hússins vildi í gær ekki útiloka að Lewis „Scooter“ Libby, fyrrverandi starfsmannastjóri Dicks Cheney varaforseta, yrði náðaður, en í bili væri George W. Bush forseti ánægður með ákvörðun sína um að Libby skyldi ekki þurfa að afplána tveggja og hálfs árs fangelsisdóm sem hann fékk fyrir aðild sína að því að leka trúnaðarupplýsingum í „CIA-lekamálinu“ svonefnda.

Bush tilkynnti um þá ákvörðun sína á mánudag, samdægurs og áfrýjunardómstóll hafði úrskurðað að Libby gæti ekki frestað afplánun fangelsisdómsins. Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sagði ákvörðun Bush sýna að forsetinn „láti glæpsamlega framgöngu óátalda.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×