Erlent

Sovéthermenn endurgreftraðir

Eistneskur varðmaður við nýjan hvílustað sovésku hermannanna við minnismerkið umdeilda, Bronshermanninn.
Eistneskur varðmaður við nýjan hvílustað sovésku hermannanna við minnismerkið umdeilda, Bronshermanninn. MYND/AP

Átta sovéskir hermenn, sem jarðsettir höfðu verið á sínum tíma hjá minnismerkinu Bronshermanninum á áberandi stað í miðborg Tallinn, höfuðborg Eistlands, voru í gær endurjarðsettir í hermannakirkjugarðinum þangað sem minnismerkið var flutt fyrir skemmstu.

Málið hefur valdið alvarlegri milliríkjadeilu á milli Eista og Rússa. Rússar álíta flutninginn örgustu goðgá. Minnismerkið minnir Eista aftur á móti á fimm áratuga ok Sovétríkjanna í landinu.

Sendiherra Rússlands í Eistlandi, Nikolai Uspensky, neitaði að vera viðstaddur jarðsetninguna í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×