Alþjóðalög vernda engan 11. febrúar 2007 06:00 Vladimir Putin Rússlandsforseti var harðorður í garð bandarískra stjórnvalda og gagnrýndi utanríkisstefnu þeirra. MYND/AP
Helstu sérfræðingar heims í varnarmálum komu saman á árlegri ráðstefnu um öryggismál í München um helgina, þar á meðal Ali Larijani, helsti samningamaður Írana í kjarnorkudeilunni. Viðstaddir voru um 250 manns, þar af 40 varnar- og utanríkisráðherrar. Vladimir Putin, forseti Rússlands, var gagnrýninn í ræðu sinni á fundinum. „Eitt ríki, Bandaríkin, hefur vaðið yfir landamæri sín á allan hátt. Þetta er gríðarlega hættulegt, enginn getur verið öruggur lengur því að alþjóðalög eru virt að vettugi,“ sagði Putin. „Þetta veldur vopnakapphlaupi, því að þjóðir vilja koma sér upp kjarnorkuvopnum.“ Forsetinn gagnrýndi einnig áætlanir Bandaríkjanna um að koma upp eldflaugavarnarkerfi í austurhluta Evrópu, líklega Póllandi og Tékklandi. Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Jaap de Hoop Scheffer lýsti yfir vonbrigðum sínum vegna ummæla Putins. „Hver getur verið áhyggjufullur með að lýðræði og löggæsla nálgist landamæri þeirra?“ sagði Scheffer á fundinum. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði á fundinum að Íranar yrðu að lúta þeim kröfum sem Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóða kjarnorkumálastofnunin hafa gert til kjarnorkuáætlana þeirra. „Við erum að tala um mjög viðkvæma tækni og þess vegna þurfum við gríðarlegt gegnsæi, sem Írönum hefur ekki tekist að stuðla að. Ef Íranar gera það ekki munu þeir einangrast enn frekar,“ sagði Merkel. Merkel sagði einnig vera mikilvægt að Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið tækju höndum saman til að koma á friði í Afganistan. Einnig þyrfti samstillt alþjóðlegt átak í baráttunni gegn gróðurhúsaáhrifum. Sjálfstæðisbarátta Kosovohéraðs í Serbíu var einnig til umræðu á fundinum. Putin sagði Rússa ekki geta stutt áætlun um sjálfstæði Kosovo héraðs sem Serbar væru ósammála. Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn John McCain sagðist óánægður með að Rússar legðust gegn áætluninni. Á annað þúsund manns mótmæltu á meðan fundurinn stóð og fóru mótmælin að mestu friðsamlega fram.
Mest lesið Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Innlent Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Innlent „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Erlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Innlent Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Erlent Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi Erlent Fúlsaði við þriggja forseta fundi Erlent Fleiri fréttir Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Sjá meira
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent