Erlent

Fé heitið til bólusetninga

Fagnar átaki Paul Wolfowitz, yfirmaður Alþjóðabankans, talar á ráðstefnunni í Róm í gær.
Fagnar átaki Paul Wolfowitz, yfirmaður Alþjóðabankans, talar á ráðstefnunni í Róm í gær. MYND/AP

Fulltrúar fimm landa hétu í gær um einum og hálfum milljarði bandaríkjadala, andvirði um 103 milljarða króna, til fjármögnunar átaks til að hvetja lyfjafyrirtæki til að þróa bóluefni til að hefta útbreiðslu lungnabólgu og heilahimnubólgu í þróunarlöndum.

Markmiðið með átakinu, sem var kynnt í Róm í gær, er að bjarga lífi að minnsta kosti 5,4 milljóna barna í fátækustu löndum heims fram til ársins 2030. Átakið, sem Ítalía, Kanada, Noregur, Rússland og Bretland hafa heitið fé í, er liður í víðtækara verkefni sem hefur að markmiði að verjast banvænum sjúkdómum í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×