Erlent

Varkárar viðtökur

Saman á bæn Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínustjórnar, Khaled Mashaal, leiðtogi Hamas, Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Mohammed Dahlan, meðlimur í Fatah, sitja saman á bæn í moskunni miklu í Mekka.
Saman á bæn Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínustjórnar, Khaled Mashaal, leiðtogi Hamas, Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Mohammed Dahlan, meðlimur í Fatah, sitja saman á bæn í moskunni miklu í Mekka. MYND/AP

Samkomulagið sem leiðtogar tveggja fylkinga Palestínumanna gerðu í Mekka í Sádi-Arabíu á fimmtudaginn hefur hlotið jákvæð viðbrögð, sem einkennast þó af varfærni, frá ráðamönnum í Evrópuríkjum og Bandaríkjunum.

Palestínumenn fögnuðu hins vegar samkomulaginu á götum úti í Gaza-borg, þar sem átök fylkinganna hafa verið hörðust, í von um að nú hafi borgarastríði klárlega verið afstýrt. Leiðtogar Palestínumanna voru á hinn bóginn varkárir í tali og sögðu að erfitt gæti reynst að framkvæma samkomulagið.

Kvartettinn svonefndi, fulltrúar frá Bandaríkjunum, Evrópusambandinu, Rússlandi og Sameinuðu þjóðunum, fagnaði hins vegar samkomulaginu og lét í ljós þá von að það gæti orðið til þess að friður næðist við Ísrael.

Emma Udwin, talskona Evrópusambandsins, sagði aðila kvartettsins vera sammála um að nú þyrfti að taka þann tíma sem þarf til að athuga í hverju samkomulagið er fólgið og hvernig á að hrinda því í framkvæmd – fyrr verði ekki hægt að aflétta alþjóðlegu banni á aðstoð til Palestínumanna.

Deilurnar milli Fatah og Hamas hófust eftir að Hamas komst í meirihluta í kosningum til Palestínustjórnar snemma á síðasta ári. Samningar um stjórnarsamstarf fylkinganna hafa meðal annars strandað á því að Hamas hefur ekki viljað viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis eða hafna öllu ofbeldi.

Samningurinn sem náðist í Mekka nú í vikunni byggðist meðal annars á því að Hamas lofaði að „virða“ alla friðarsamninga sem gerðir hafa verið við Ísrael.

Óljóst þykir nákvæmlega hvað í þessu felst, en hvort samkomulagið ber árangur fer algerlega eftir því hvort Bandaríkjunum og Ísrael þykir í þessu orðalagi felast nægilega skýr trygging fyrir því að Hamas hafi dregið í land.

Blóðug átök milli Fatah og Hamas hafa á síðustu vikum kostað 30 manns lífið, þannig að alls óvíst er hvort þetta samkomulag getur orðið til þess að fylkingarnar tvær nái í raun sáttum eftir allt sem á undan er gengið.

Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði ekki hægt að leggja frekara mat á samkomulagið fyrr en Hamas og Fatah hefðu myndað starfhæfa stjórn með raunhæfa stefnu, en tók fram að „enginn friður getur orðið ef borgarastríð geisar meðal Palestínumanna“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×