Varkárar viðtökur 10. febrúar 2007 02:30 Saman á bæn Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínustjórnar, Khaled Mashaal, leiðtogi Hamas, Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Mohammed Dahlan, meðlimur í Fatah, sitja saman á bæn í moskunni miklu í Mekka. MYND/AP
Samkomulagið sem leiðtogar tveggja fylkinga Palestínumanna gerðu í Mekka í Sádi-Arabíu á fimmtudaginn hefur hlotið jákvæð viðbrögð, sem einkennast þó af varfærni, frá ráðamönnum í Evrópuríkjum og Bandaríkjunum. Palestínumenn fögnuðu hins vegar samkomulaginu á götum úti í Gaza-borg, þar sem átök fylkinganna hafa verið hörðust, í von um að nú hafi borgarastríði klárlega verið afstýrt. Leiðtogar Palestínumanna voru á hinn bóginn varkárir í tali og sögðu að erfitt gæti reynst að framkvæma samkomulagið. Kvartettinn svonefndi, fulltrúar frá Bandaríkjunum, Evrópusambandinu, Rússlandi og Sameinuðu þjóðunum, fagnaði hins vegar samkomulaginu og lét í ljós þá von að það gæti orðið til þess að friður næðist við Ísrael. Emma Udwin, talskona Evrópusambandsins, sagði aðila kvartettsins vera sammála um að nú þyrfti að taka þann tíma sem þarf til að athuga í hverju samkomulagið er fólgið og hvernig á að hrinda því í framkvæmd – fyrr verði ekki hægt að aflétta alþjóðlegu banni á aðstoð til Palestínumanna. Deilurnar milli Fatah og Hamas hófust eftir að Hamas komst í meirihluta í kosningum til Palestínustjórnar snemma á síðasta ári. Samningar um stjórnarsamstarf fylkinganna hafa meðal annars strandað á því að Hamas hefur ekki viljað viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis eða hafna öllu ofbeldi. Samningurinn sem náðist í Mekka nú í vikunni byggðist meðal annars á því að Hamas lofaði að „virða“ alla friðarsamninga sem gerðir hafa verið við Ísrael. Óljóst þykir nákvæmlega hvað í þessu felst, en hvort samkomulagið ber árangur fer algerlega eftir því hvort Bandaríkjunum og Ísrael þykir í þessu orðalagi felast nægilega skýr trygging fyrir því að Hamas hafi dregið í land. Blóðug átök milli Fatah og Hamas hafa á síðustu vikum kostað 30 manns lífið, þannig að alls óvíst er hvort þetta samkomulag getur orðið til þess að fylkingarnar tvær nái í raun sáttum eftir allt sem á undan er gengið. Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði ekki hægt að leggja frekara mat á samkomulagið fyrr en Hamas og Fatah hefðu myndað starfhæfa stjórn með raunhæfa stefnu, en tók fram að „enginn friður getur orðið ef borgarastríð geisar meðal Palestínumanna“.
Mest lesið „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent Kynna breytta Reykjavíkurleið Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Erlent Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Veður Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það Innlent Fleiri fréttir Allt í gangi í Genf Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Sjá meira