Fabregas hefur enga veikleika 10. nóvember 2007 14:12 Fabregas hefur sprungið út undir stjórn kraftaverkamannsins Wenger NordicPhotos/GettyImages
Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, hefur nú ýtt undir orðróm um áhuga félagsins á Spánverjanum Cesc Fabregas hjá Arsenal. Rijkaard segir hinn unga miðjumann ekki hafa neina augljósa veikleika sem leikmaður. Arsene Wenger fékk Fabregas einmitt frá Barcelona árið 2003 og hefur hann heldur betur sprungið út hjá Arsenal síðan - ekki síst á þessari leiktíð þar sem hann er þegar búinn að skora 11 mörk. "Það er að mínu mati einn leikmaður sem stendur upp úr í knattspyrnuheiminum í dag hvað varðar hæfileika á miðað við aldur og það er Fabregas. Það er virkilega sérstakt að sjá hvað hann hefur gert með Arsenal svona ungur að árum og hann er orðinn leiðtogi liðsins. Ég er ekki vanur að leita sérstaklega að veikleikum leikmanna, en ég sé satt best að segja enga veikleika í leik Fabregas," sagði Rijkaard. Arsene Wenger hefur slegið á alla orðróma um að Fabregas muni fara frá Arsenal, en spænska pressan er dugleg að prenta sögur af mögulegr endurkomu hans á heimaslóðirnar. "Ef Barcelona vill kaupa samningsbundinn leikmann get ég alveg gefið þeim símanúmerið mitt - en ég held að þeir séu með númerið mitt þar sem þeir eru nýbúnir að kaupa Thierry Henry," sagði Wenger og bætti við að það væri "ekki möguleiki" að hann íhugaði að selja Fabregas. Spænskir fjölmiðlar gerðu mikið úr því í vikunni þegar Fabregas skellti sér til Barcelona að fylgjast með liðinu spila við Celtic, en Wenger sagði hann aðeins hafa verið í fríi og þá mætti hann gera hvað sem hann vildi.
Enski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Sjá meira