Erlent

Sjóliðarnir líklega ákærðir

AFP

Bresku sjóliðarnir fimmtán sem Íranar handtóku fyrir rúmri viku vegna meintra landhelgisbrota verða líklega ákærðir og dregnir fyrir dómara. Undirbúningur að lögsókn gegn þeim er þegar hafin. Þetta fullyrti Gholamreza Ansari sendiherra Írans í Rússlandi í samtali við þarlenda sjónvarpsstöð í morgun.

Deilan vegna sjóliðanna heldur áfram að stigmagnast. Í gær kom einn þeirra fram í írönsku sjónvarpi og baðst afsökunar á að hafa siglt um íranska landhelgi í leyfisleysi. Tony Blair forsætisráðherra Bretlands fordæmdi Íransstjórn í kjölfarið fyrir að stilla sjóliðanum fram með þessum hætti. Þá skoruðu utanríkisráðherrar ESB á Írana að láta sjóliðana tafarlaust úr haldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×