Erlent

Tvö lítil börn drukknuðu

Frá Færeyjum.
Þjóðarsorg ríkti á eyjunum í gær.
Frá Færeyjum. Þjóðarsorg ríkti á eyjunum í gær.

Sjö ára gömul stúlka og sex ára drengur drukknuðu í Færeyjum laust fyrir hádegi í gær. Færeyskir fjölmiðlar skýrðu frá þessu á netsíðum sínum í gær.

Samkvæmt frásögn dagblaðsins Dimmalætting voru börnin í göngutúr með hópi barna frá gæsluvelli í bænum Trangisvági á Suðurey, en voru komin á undan hópnum þegar annað barnið féll út í á. Hitt reyndi að koma því til bjargar en féll þá líka út í.

Kalla þurfti út björgunarlið, slökkvilið og sjálfboðaliða til að leita að börnunum og fundust þau síðar í sjónum skammt frá ármynninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×