Erlent

Fleiri með sakaskrá teknir inn

Skortur á sjálfboðaliðum á stríðstímum.
Skortur á sjálfboðaliðum á stríðstímum. MYND/AP

Erfiðleikar bandaríska hersins við að fá sjálfboðaliða til hermennsk aukast enn. Vandkvæði við að fá sjálfboðaliða sem uppfylla ströngustu kröfur valda því að nú er æ algengara að menn með sakaskrá eru teknir í herinn.

Á árinu 2006 veitti herinn tvöfalt fleiri undanþágur en árið 2003 fyrir sjálfboðaliða með brotaferil, heilsuvandamál eða þá sem koma illa út úr hæfnisprófum, en þetta myndi að öllu jöfnu útiloka þá frá herþjónustu, að því er fram kemur í gögnum frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×