Erlent

Ræða Alþjóðahvalveiðiráðið

Japanar kalla eftir stuðningi við að hvalveiðar í atvinnuskyni verði leyfðar á ný.
Japanar kalla eftir stuðningi við að hvalveiðar í atvinnuskyni verði leyfðar á ný. MYND/AFP

Í Japan stendur nú yfir ráðstefna þar sem rætt er hvernig færa megi Alþjóðahvalveiðiráðið aftur nær upprunalegu markmiði sínu; að stýra hvalveiðum.

Japanar hófu ráðstefnuna á þriðjudag á því að ávíta fulltrúa þeirra þjóða sem eru andvígar hvalveiðum fyrir að vera fjarverandi. Öllum 72 aðildarþjóðum ráðsins var boðið og ákváðu 38 þjóðir að sniðganga ráðstefnuna, þar á meðal Bretar, Ástralar og Bandaríkjamenn.

Fulltrúi Japans í ráðinu, Minoru Morimoti, sagði fjarveru þjóðanna gera viðræður um umbætur á ráðinu „nánast ómögulegar“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×