Mörg erfiðustu deiluefnin enn óleyst 15. febrúar 2007 02:00 Ismail Haniyeh með dóttur sinni á mánudag eftir að hann sneri aftur til Gazaborgar frá fundinum í Mekka. MYND/AP
Palestínumenn ætla fljótlega að hefja samningaviðræður um nýja þjóðstjórn með þátttöku beggja helstu fylkinga þeirra, Hamas og Fatah. Mörg erfiðustu deiluefni þeirra eru þó enn óleyst, eins og til dæmis hver fari með yfirsstjórn öryggissveitanna og hvað verði um vopnaðar sveitir Hamas-samtakanna. Sömuleiðis er enn alls óvíst hver viðbrögð Ísraelsstjórnar verða. Ísraelar hafa hingað til viljað ræða við Mahmoud Abbas, leiðtoga Fatah og forseta Palestínustjórnar, en neitað að eiga orðastað við Ismail Haniyeh, leiðtoga Hamas og forsætisráðherra stjórnarinnar, sem segir af sér í dag. Þeir Haniyeh og Abbas hittast síðar í dag til að hefja viðræður sínar, en þeir þurfa að ljúka stjórnarmyndun innan fimm vikna. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hefur sagt að Ísraelsstjórn muni hugsanlega slíta öll tengsl við Abbas, telji hún þjóðstjórnina ekki ætla að uppfylla þau skilyrði að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis, viðurkenna fyrri friðarsamninga og hafna öllu ofbeldi. Hörð átök hafa verið milli liðsmanna Fatah og Hamas svo legið hefur við borgarastríði, en á fundi leiðtoga beggja fylkinganna í Mekka í Sádi-Arabíu um helgina tókst samkomulag milli þeirra, sem þó er óvíst hversu auðvelt verður að framkvæma. Á mánudaginn næsta ætlar Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að hitta bæði Haniyeh og Abbas á sameiginlegum fundi þeirra þriggja, og þá gæti verið að málin skýrist eitthvað.
Mest lesið Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Innlent Sáttur við að staða hans sé auglýst Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent Lögreglan leitar manns Innlent „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Innlent Fleiri fréttir Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Sjá meira