Serbíustjórn loks mynduð 12. maí 2007 06:00 Kostunica, starfandi forsætisráðherra, og Boris Tadic forseti komust loks að samkomulagi fyrir hönd flokka sinna. MYND/AFP
Lýðræðissinnaflokkar Serbíu náðu í gær loks samkomulagi um að mynda saman ríkisstjórn, fjórum mánuðum eftir að þingkosningar fóru fram í landinu. Frá þessu greindi þingforsetinn Tomislav Nikolic, sem sjálfur er leiðtogi öfgaþjóðernissinna. Með stjórnarmyndunarsamkomulaginu var því afstýrt að flokkur hans, Róttæki flokkurinn, kæmist til valda. Nikolic tjáði AP-fréttastofunni að Boris Tadic forseti og Vojislav Kostunica, starfandi forsætisráðherra, hefðu náð saman um stjórnarmyndunina. Samkvæmt fréttum serbneskra fjölmiðla felst meðal annars í samkomulaginu að Nikolic haldi ekki þingforsetaembættinu sem hann var kjörinn í fyrr í vikunni. „Mér var tilkynnt að samkomulag um myndun nýju ríkisstjórnarinnar hefði náðst,“ sagði Nikolic. „Ég mun kalla saman þing, sennilega á morgun, til að kjósa nýju stjórnina.“ Nikolic sagðist frekar myndu segja sjálfur af sér en láta skipta sér út fyrir annan. Hann sagðist ennfremur vænta þess að Kostunica myndi halda forsætisráðherraembættinu. Hefði ekki tekist að mynda stjórn fyrir næsta þriðjudag hefði þurft að boða til kosninga á ný, en ljóst þykir að eingöngu Róttæki flokkurinn hefði grætt á því, en hann er nú þegar stærsti flokkurinn á þingi. Ráðamenn á Vesturlöndum og grannríki Serbíu fylltust að gefnu tilefni áhyggjum af því hvert Serbía stefndi þegar Nikolic náði í vikunni kjöri til embættis þingforseta. Róttæki flokkurinn átti aðild að stjórn Slobodans Milosevic á tíunda áratugnum, þegar Serbar háðu stríð við fyrrum bræðraþjóðir sínar í gömlu Júgóslavíu. Serbía tók í gær við formennsku í Evrópuráðinu og mun gegna henni næsta hálfa árið. Vissir fyrirvarar voru þó á því að hin væntanlega nýja Serbíustjórn væri fær um að fara fyrir stofnuninni, sem beitir sér einkum og sér í lagi í mannréttindamálum álfunnar, þar sem serbnesk stjórnvöld hafa ekki reynst fær um að verða við þeim kröfum sem Evrópuráðið hefur beint til þeirra, fyrst og fremst varðandi handtöku og framsal eftirlýstra stríðsglæpamanna.
Mest lesið Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Veður „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Innlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Innlent Átti að fá smáaura fyrir sögulegt smygl Innlent Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Fleiri fréttir Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Sjá meira