Erlent

18 þúsund manns striplast í Mexíkóborg

MYND/AFP

Rúmlega átján þúsund manns komu saman á aðaltorgi Mexíkó borgar í gær, og klæddu sig úr fötunum. Það var bandaríski ljósmyndarinn Spencer Tunick sem stóð fyrir gjörningnum en hann hefur sérhæft sig í því að mynda nakið fólk í hópum.

Tunick setti persónulegt met í þessari myndatöku þegar kemur að fjölda nakinna en fyrra metið setti hann í Barcelona þegar sjö þúsund spánverjar stripluðust fyrir hann í nafni listarinnar.

Þess má geta að Tunick er væntanlegur hingað til lands nú í vikunni en á laugardaginn kemur opnar hann sýningu á verkum sínum í i8 galleríinu á Klapparstíg. Þar verða meðal annars til sýnis myndir sem Tunick gerði hér á landi í fyrra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×