Tákn bættra varnartengsla 1. apríl 2007 03:30 Tölvugerð mynd frá Airbus af A400M-flutningavélinni á flugi. Fyrsta slíka vélin á að hefja sig til flugs á næsta ári. MYND/AFP
Nú þegar framleiðsla er að hefjast á evrópsku herflutningavélinni Airbus A400M, sem eitt sinn var hampað sem lykilatriði í að gera Evrópusambandið hernaðartæknilega óháð NATO og Bandaríkjunum, er verkefnið orðið frekar að tákni fyrir þróuð varnarmálatengsl yfir Atlantshafið en fyrir tilraunir ESB til að verða óháð bandarísku herverndarhlífinni. Stefnan var sett á smíði vélarinnar á síðasta áratug, í kjölfar stríðsátakanna á Balkanskaga. Þá vöknuðu Evrópuríkin upp við þann vonda draum að vera ófær um að flytja friðargæsluliða og hjálpargögn á vettvang nema með aðstoð frá Bandaríkjaher, þótt vettvangurinn væri svo skammt undan. Nýja flutningavélin gegndi lykilhlutverki í nýrri öryggis- og varnarmálastefnu Evrópusambandsins en eitt af markmiðunum með henni var að samræma hergagnaframleiðslu og varnaráætlanir í Evrópulöndunum og gera skilvirkari í þeim aðstæðum sem upp voru komnar eftir lok kalda stríðsins. Þegar þessar hugmyndir komu fyrst fram var þeim illa tekið meðal ráðamanna í Washington, en þá var Bill Clinton enn á forsetastóli vestra. Hugmyndir Evrópumanna voru gagnrýndar sem sóun og óþarfa tvíverknaður, þar sem Bandaríkjaher hefði yfir þeirri tækni og getu að ráða sem þörf væri á. Þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Madeleine Albright, varaði jafnvel við hugsanlegum slitum milli Evrópu og Bandaríkjanna hvað varnarhagsmuni varðaði ef Evrópusambandið héldi áfram að beina kröftum og fé frá NATO að uppbyggingu eigin varnargetu. Síðan sinnaðist ráðamönnum forysturíkja meginlands Evrópu og Bandaríkjanna alvarlega er deilan um innrásina í Írak stóð sem hæst. En nú er sá æsingur allur að baki og sú sameiginlega afstaða orðin ofan á, að þeim mun meiri varnargetu sem vestrænu bandamennirnir koma sér upp, því betra, hvort sem það gerist í nafni ESB eða NATO. Flest ESB-ríkin eru hvort eð er í NATO. Hið sameiginlega verkefni í Afganistan hjálpar einnig til að gera samstarfið milli bandamannanna beggja vegna Atlantshafsins jarðbundið og árangursmiðað. Nýja Airbus A400M-vélin lítur út eins og stækkuð útgáfa af hinni bandarísku C-130 Hercules. Burðargeta Airbus-vélarinnar verður nærri tvöföld á við Hercules. Fyrstu vélarnar eiga að fara í loftið á næsta ári og frá árinu 2009 verða þær teknar í notkun af flugherjum ríkjanna sem aðild eiga að verkefninu. Alls hafa nærri 200 vélar verið pantaðar fram til þessa.
Mest lesið Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Fleiri fréttir Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Sjá meira