Erlent

Afplánar bara níu mánuði

Fangabúðirnar í Guantanamo hafa verið starfræktar í um það bil fimm ár.
Fangabúðirnar í Guantanamo hafa verið starfræktar í um það bil fimm ár.

Ástralinn David Hicks, sem hefur verið fangi í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu, þarf aðeins að afplána níu mánuði af sjö ára fangelsisdómi sínum.

Hicks var nýverið dæmdur í sjö ára fangelsi eftir að hafa játað að hafa stutt við bakið á hryðjuverkastarfsemi í Afganistan árið 2001. Við sama tækifæri dró hann til baka ásakanir um að hann hefði verið beittur harðræði í haldi Bandaríkjamanna. Fjölskylda Hicks kveðst hins vegar viss um að hann hafi verið þvingaður til þess að halda því fram.

Hicks mun afplána fangelsisdóm sinn í heimalandinu eftir að hann gerði samning við bandarísk yfirvöld. Samþykkti hann að tala ekki við fjölmiðla næsta árið og að þiggja ekki neinar greiðslur fyrir að segja sögu sína. Einnig má hann ekki höfða mál gegn bandarískum stjórnvöldum. Verður hann fluttur til Ástralíu strax eftir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×