Launamunur kynja 15 prósent innan ESB 1. apríl 2007 05:00 Konur eru rúmlega sextíu prósent þeirra sem útskrifast úr íslenskum háskólum. MYND/Heiða
Konur skipa þrjú af hverjum fjórum störfum sem hafa skapast í ríkjum Evrópusambandsins frá árinu 2000. Tæplega sextíu prósent þeirra sem útskrifast með háskólagráðu eru konur. Þrátt fyrir það fá konur að meðaltali fimmtán prósentum lægri laun en karlmenn fyrir hverja unna klukkustund, samkvæmt nýrri skýrslu framkvæmdastjórnar ESB um jafnrétti kynjanna. Fram kemur að atvinnuþátttaka kvenna í ríkjum ESB hefur aukist stöðugt síðustu tólf árin og mælist nú 56,3 prósent. Markmið ESB er að atvinnuþátttaka kvenna verði komin upp í sextíu prósent árið 2010. Aukningin hefur þó aðallega átt sér stað í starfsgreinum þar sem konur eru í meirihluta fyrir og eru yfirleitt verr launaðar. Konur eiga einnig erfiðara með að komast í stöður þar sem ákvarðanir eru teknar. Þetta stangast á við niðurstöður viðhorfskönnunar sem gerð var á vegum ESB í janúar þar sem tæp áttatíu prósent aðspurðra sögðu þörf á fleiri konum í stjórnunarstöður og rúm sjötíu prósent vildu fleiri kvenkyns þingmenn. Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri rannsóknasviðs hjá jafnréttisstofu, segir að á meðan atvinnuþátttaka kvenna sé miklu betri hér á landi miðað við ríki ESB sé launamunur meiri. „Atvinnuþátttaka kvenna er rétt um áttatíu prósent og það munar ekki nema sex eða sjö prósentum á atvinnuþátttöku karla og kvenna á Íslandi í dag.“ Ingólfur segir meiri launamun hérlendis ekki þurfa að koma á óvart. „Árið 2005 voru íslenskar konur með um 81 prósent af launum karla. Það hvílir að hluta á því að við erum ennþá með um 37 prósent kvenna í hlutastörfum og að teknu tilliti til vinnutíma er tilhneigingin sú að þær eru á lægri launum en þær sem eru í fullu starfi. Evrópumenn hafa ekki verið mikið með konur í hlutastarfi. Annað hvort eru þær heima eða í fullu starfi.“ Jafnvægi milli atvinnu og einkalífs er nefnt sem lykilatriði þess að ná fram auknu jafnrétti kynjanna. Meðal hindrana þess sem tilgreindar eru í skýrslunni eru skortur á vistunarúrræðum, bág fjárhagsleg staða, seinkanir á starfsframa, hætta á að tapa niður hæfni, erfiðleikar við að snúa aftur í vinnu og þrýstingur á að fylgja staðalímynd. Samkvæmt nýlegri könnun hérlendis segja rúm sjötíu prósent foreldra að fjölskylduábyrgð rekist stundum á við vinnuábyrgð, sautján prósent að það gerðist oft og tólf prósent að það gerðist aldrei. „Við erum þó betur stödd en mörg Evrópulönd því það er betri dekkun í leikskólum. Þetta er þáttur sem við erum mikið öfunduð af í Evrópu því menn vita að þetta er lykilatriði til að fá konur á vinnumarkaðinn,“ segir Ingólfur.
Mest lesið Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Fleiri fréttir Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Sjá meira