Erlent

Um helmingur enn óákveðinn

Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista
Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista AP

Um helmingur Frakka hefur enn ekki gert upp hug sinn fyrir forsetakosningar sem haldnar verða í næsta mánuði. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Le Parisien sem birt var í dag. Ekki hafa fleiri verið óákveðnir þetta stuttu fyrir kosningar síðan 1981 þegar Francois Mitterand var kjörinn forseti og meira en helmingi fleiri eru óákveðnir nú en fyrir síðustu kosningar árið 2002. Könnunin gefur til kynna að Nicolas Sarkozy frambjóðandi hægrimanna hafi naumt forskot á Segolene Royal frambjóðanda sósíalista.

Stjórnmálaskýrendur Le Parisien segja svo marga vera óákveðna vegna þess að frambjóðendur eru ólíkir þeim sem áður hafa barist um embættið og að það sé að losna um fylgi sem hefur verið mjög ákveðið áratugum saman. Það sem enn eykur á óvissuna fyrir fyrri umferð kosninganna er að frambjóðandi miðjuflokksins Francois Bayrou hefur 20 prósenta fylgi meðal ákveðinna og nálgast nú þau Sarkozy og Royal sem mælast með 28 og 27 prósent. Þeir tveir frambjóðendur sem mest fylgi fá í fyrri umferð mætast svo í annari umferð tveimur vikum síðar, að því gefnu að enginn frambjóðandi nái hreinum meirihluta í þeirri fyrri. Í síðustu kosningum kom öfgahægrimaðurinn Jean-Marie le Pen öllum á óvart þegar hann skaut sósíalistaframbjóðandanum ref fyrir rass og mætti því Jacques Chirac í síðari umferðinni, þar sem Chirac hafði að vísu öruggan sigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×