Erlent

Verjendur gagnrýna lögreglu og dómstóla

Lögregla tók hart á mótmælendum fyrir helgi
Lögregla tók hart á mótmælendum fyrir helgi Mynd/Hari

Verjendur þeirra sem voru handteknir í óeirðum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn gagnrýna margir hverjir borgardómara og lögreglu fyrir framferði sitt. Af þeim 225 sem leiddir hafa verið fyrir dómara eftir óeirðirnar hafa um 200 verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Minnst sex lögmenn sem samtals verja 80-100 af þeim sem nú sitja í gæsluvarðhaldi sjá ekki málið í því ljósi sem lögreglan gerir en lögmennirnir segja lögreglu og dómstóla mæla árangur sinn í því hversu margir hafa verið handteknir. Lögmennirnir segja málið allt hafa gengisfellt réttarkerfið. Yfirsaksóknari Kaupmannahafnarlögreglunnar segist hissa á ummælum verjendanna og segir málatilbúnað þeirra storm í vatnsglasi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×