Erlent

Sakfellt í lekamálinu í gær

Fyrrverandi starfsmannastjóri Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, Lewis Libby, var í gær sakfelldur fyrir hindrun réttvísinnar, meinsæri og að hafa logið að alríkislögreglunni (FBI) við rannsókn á leka á nafni útsendara leyniþjónustunnar (CIA).

Árið 2003 var nafni útsendarans Valerie Plame lekið til fjölmiðla. Mikið var rætt um að hugsanlega hefði það verið hefnd vegna harðrar gagnrýni eiginmanns Plame á Íraksstríðið.

Dómur yfir Libby verður kveðinn upp í maí og gæti hann átt yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×