Erlent

Tsvangirai fyrir rétt í dag

Morgan Tsvangirai
Morgan Tsvangirai Getty Images

Morgan Tsvangirai leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve verður leiddur fyrir rétt í dag. Þetta segir lögmaður hans. Hæstiréttur landsins krafðist þess að hann yrði annað hvort leiddur fyrir rétt eða látinn laus.

Tsvangirai var handtekinn á fjöldafundi á sunnudag að því er virðist fyrir engar sakir aðrar en að standa fyrir fundinum þó innanríkisráðherra landsins segi að fundarmenn hafi borið vopn, ráðist að lögreglu og unnið skemmdarverk.

Í gær ásakaði lögmaður hans lögreglu um að beita Tsvangirai ofbeldi og pyntingum í fangelsi og að hann hafi enn ekki fengið að hitta lækni. Tsvangirai hefur verið helsti andstæðingur Roberts Mugabe, sem hefur verið forseti landsins frá árinu 1980.

Vaxandi óánægja er með stjórnarhætti hans en í landinu er atvinnuleysi mjög mikið og verðbólgan 1700% sem er það mesta í heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×