Erlent

BBC óttast um afdrif Johnston

Alan Johnston
Alan Johnston Mynd/BBC

BBC, breska ríkisútvarpið óttast um afdrif fréttamanns sem rænt var á Gaza-ströndinni af palestínskum vígamönnum í gær. Bíll fréttamannsins, Alan Johnston fannst yfirgefinn í Gazaborg í gær, skömmu eftir að hann hafði lagt af stað heim á leið frá skrifstofu sinni.

Nokkrum blaðamönnum og hjálparstarfsmönnum hefur verið rænt á Gaza undanfarið en öllum hefur verið sleppt án þess að þeim hafi verið unnið mein. Johnston er 44 ára og hefur starfað fyrir BBC á Gaza síðustu þrjú árin. Hann hefur verið eini fréttamaðurinn frá stórri fréttastöð með starfstöð á svæðinu.

BBC segja að þeir reyni nú að afla eins mikilla upplýsinga og þeir geta en sögum ber ekki saman um afdrif Johnston. Palestínskir lögreglumenn hafa vitnað um að fjórir byssumenn hafi sést í nágrenni staðisins þar sem bíll Johnston fannst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×