Erlent

Bush kominn til Mexíkó

Mótmælendur í Mexíkóborg
Mótmælendur í Mexíkóborg AP

George Bush Bandaríkjaforseti lýkur fimm landa heimsóknaferð sinni um Mið- og Suður-Ameríku í dag í Mexíkó þar sem hann áætlar að ræða viðkvæm mál á borð við innflytjendamál, landamæraeftirlit og eiturlyfjasölu við starfsbróður sinn Felipe Calderon. Líkt og annars staðar þar sem Bush hefur komið á ferð sinni tóku á móti honum þúsundir mótmælenda. Hugo Chavez forseti Venesúela og svarinn andstæðingur Bush hefur verið á ferðalagi á sama tíma og kom til Haiti í gær þar sem honum var fagnað mjög af tugum þúsunda. Chavez hóf ferð sína í Argentínu í síðustu viku þar sem hann var aðalræðumaður á risastórum and-Bush fundi og hefur síðan heimsótt Bólivíu, Nicaragua og Jamaíku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×