Erlent

El Baradei kominn til Norður-Kóreu

AP

Yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, Mohamed El Baradei kom til Norður-Kóreu í morgun en þangað er hann kominn til að ræða leiðir landsins til að láta af framleiðslu kjarnorku og styrkja tengsl stofnunarinnar við landið. Búist er við því að hann muni biðja stjórnvöld í Pyongyang um að leyfa eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna að koma sem fyrst til að fylgjast með gangi mála. Fyrir rétt um mánuði sömdu Norður-Kóreumenn við fimm önnur ríki um að slökkva á eina kjarnaofni landsins innan 60 daga í skiptum fyrir efnahagsaðstoð og afnám viðskiptahindrana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×