Erlent

Ásakanirnar gengu á víxl

Á ráðstefnu um Írak sem haldin var í Bagdad á laugar­daginn sökuðu fulltrúar Bandaríkjanna og Írans hvor annan um að kynda undir ófriðinn í Írak.

Nouri al-Maliki setti ráðstefnuna, sem haldin var í Bagdad á laugardaginn, og hvatti þátttakendur til að hjálpa til við að bæta ástandið í Írak og koma í veg fyrir að átökin breiddust út til nágrannalandanna.

Íranar brugðust ókvæða við þegar David Satterfield, fulltrúi Bandaríkjanna, benti á skjalatösku sína og sagði þar vera að finna sannanir þess að Íranar útveguðu sjíum í Írak vopn.

„Ásakanir ykkar eru bara yfirbreiðsla yfir mistök ykkar í Írak," sagði Abbas Arighchi, fulltrúi Írans.

Fulltrúar beggja ríkjanna voru þó sammála um að fundurinn hefði verið mikilvægur. Arighchi sagði fulltrúa allra ríkjanna hafa „átt góð samskipti" á ráðstefnunni.

Fulltrúar allra nágrannaríkja Íraks, það er Írans, Sýrlands, Jórdaníu, Sádi-Arabíu, Tyrklands og Kúveit, tóku þátt í ráðstefnunni ásamt fulltrúum frá Bandaríkjunum, Rússlandi, Frakklandi, Bretlandi, Kína, Barein, Egyptalandi, Sameinuðu þjóðunum, Arababandalaginu og stofnunar íslamskra ríkja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×