Erlent

Bretar kynna frumvarp um minni útblástur

Getty Images

Stjórnvöld í Bretlandi ætla að minnka koltvísýringsútblástur landsins um 60% fyrir árið 2050. Þetta er meginefni nýs lagafrumvarps sem er í burðarliðnum.

Ráðamenn segja löggjöfina vera þá fyrstu sinnar tegundar og tryggja að Bretar verði í fararbroddi þjóða í að minnka útblástur. Gordon Brown fjármálaráðherra segir að útblástursheimildum verði úthlutað á svipaðan hátt og fjármunum er úthlutað með fjárlögum, nema á fimm ára fresti af sjálfstæðri nefnd sem fjallar um loftslagsbreytingar.

Íhaldsmenn í breska þinginu eru þeirrar skoðunnar að útdeila eigi losunarheimildum árlega en ekki á fimm ára fresti en segja þó að loftslagsbreytinar séu aðalatriði í stefnu flokksins.

Frjálslyndir demókratar, þriðji stærsti flokkur Bretlands segist styðja stjórnarfrumvarp Verkamannaflokksins upp að vissu marki en segjast tilbúnir að ganga lengra, að minnka útblástur um 80% ekki 60%.

Þrátt fyrir að skiptar skoðanir séu um leiðir að markmiðinu virðist svo vera að stjórnmálamenn í Bretlandi séu allir sammála um að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×